
Skólaráð STEM Húsavíkur var sett á fót sem hluti af Norðurslóðaverkefninu Arctic STEM Communities eftir greiningu ráðgefandi stjórnar á gögnum og samtölum við samfélagið, t.a.m. skólastjórnendur, kennara og foreldra, þar sem fram kom að í samfélaginu lifa staðalímyndir og viðhorf sem leiða af sér hindranir og skort á sjálfsöryggi í tengslum við STEM störf og möguleika í námi og starfi. Á það við um nemendur, kennara og foreldra.
Þá kom einnig fram í samtali við skólastjórnendur að núverandi STEM möguleikum innan grunnskóla er gjarnan beint að afmörkuðum hópi sem eiga erfiðara með bóknám -sem hefur mögulega áhrif á val nemenda og viðhorf.
Ákveðið var því að byrja innan skólanna með sameiginlegu skólaráði sem starfar þvert á skólastig og er til þess fallið að vinna með og greina stöðu STEM menntunar á svæðinu, vera tengiliður skóla við STEM Húsavík, ýta undir tengingu skólastiga, ýta undir samfellu í STEM námi og kveikja áhuga á STEM/STEAM greinum.
STEM skólaráðið fundar nú mánaðarlega og vinnur markvisst að því að auka stuðning við kennara innan hverrar skólastofnunar og skólastigs.

Hlutverk STEM Skólaráðs er
- að vera stuðningur við kennara innan skólastofnana,
- að vinna gegn staðalímyndum í STEM,
- að vera tengiliður skóla við STEM Húsavík,
- að ýta undir tengingu skólastiga,
- að ýta undir samfellu í STEM námi og
- að kveikja áhuga á STEM/STEAM greinum
Fulltrúar í STEM Skólaráð eru:
Auk STEM Húsavík (Huld Hafliðadóttir) sem heldur utan um ráðið:
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri á Grænuvöllum, Unnur Ösp Guðmundsdóttir sérgreinastjóri á Grænuvöllum, Halldór Jón Gíslason aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans á Húsavík og Guðný Ósk Agnarsdóttir kennari við Borgarhólsskóla.