
STEM Spjallið er hlaðvarpsþáttaröð á vegum STEM Húsavík og liður í því að auka vitneskju um STEM í samfélaginu.
Þáttastjórnandi er Huld Hafliðadóttir sem fær til sín gesti sem á einhvern hátt tengjast STEM (vísindi, tækni, verkfræði, stærðfræði) í samfélaginu, hvort heldur sem er í gegnum nám og kennslu, störf og rannsóknir eða á annan hátt.
Ef þú hefur ábendingar um áhugaverðan viðmælanda fyrir STEM Spjallið, ekki hika við að hafa samband: stem@stemhusavik.is
Þessi hlaðvarpsþáttaröð er styrkt af Samfélagssjóði Landsvirkjunar.