VERKEFNI

STEM Húsavík er þátttakandi í eftirfarandi verkefnum:

STEM Húsavík leiðir Norðurslóðaverkefnið Arctic STEM Communities, sem snýst um að efla samfélög á Norðurslóðum með því að innleiða STEM Learning Ecosystems sem verkfæri til að stýra og takast á við breytingar. Sérstök áhersla er lögð á stöðu kvenna og stelpna í STEM.

Horizon Evrópuverkefnið ST(R)E(A)M IT – Streaming girls and women into STEM education, research and innovation snýst um að koma af stað breytingum á viðvarandi kynjamisrétti í STEM menntun, rannsóknum og nýsköpun og stuðla að innleiðingu stefnu Evrópusambandsins um jafnrétti kynja innan STE(A)M greina (námi og starfi) eða „The European Manifesto for Gender-Inclusive STE(A)M education and careers”.

Saman erum við öflugri er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2024-2025 og snýst um bjóða grunnskólakennurum á Norðurlandi eystra upp á fagþjálfun, stuðning og valdeflingu í tengslum við kennslu STEM greina.  


Horizon verkefnið ICEBERG snýst um rannsóknir á mengun og áhrifum hennar á vistkerfi og samfélög á þremur svæðum norðurslóða í Evrópu: Kalaallit Nunaat (Grænlandi), Íslandi og Svalbarða. Huld hjá STEM Húsavík situr í ráðgefandi stjórn verkefnisins.

Erasmus+ verkefnið Visual Storytelling for Ocean Education (ViSOE) er þriggja ára verkefni sem snýst um að þróa nýskapandi, stafrænt námsefni um hafið fyrir kennara, m.a. byggt á nýlegri siglingu leiðangursskipsins Barba um norðurslóðir. Markmiðið með námsefninu er að auka þekkingu og vitund um hafið og lífríki þess, auk þess að stuðla að lifandi, skemmtilegu og fjölbreyttu námsefni. Efnið byggir á fjölbreyttum, persónulegum og myndrænum sögum úr leiðangri á norðurslóðum og verður aðgengilegt á netinu, bæði sem námsefni í kennaranámi og sem styttri námskeið fyrir starfandi kennara.

Innleiðing STE(A)M í Leikskólann Grænuvelli er samstarfsverkefni STEM Húsavík og Grænuvalla. Markmið verkefnisins er 1) að í lok verkefnistíma verði tilbúin ítarleg innleiðingaráætlun um STE(A)M kennslu á Grænuvöllum, 2) Faglegt námssamfélag með aukinni þekkingu og reynslu þegar kemur að STE(A)M náms- og kennsluferlum, 3) Aukið sjálfsöryggi kennara og starfsfólks við STE(A)M kennslu, 4) Nýjar áherslur í námi og og kennslu sem ríma við kröfur nútímans, 5) Breytingar í námskrá leikskólans og í nýjar kennsluaðferðir sem aðlagaðar verða frá STEM Learning Ecosystems að umhverfi og aðstæðum á Húsavík, 6) að Leikskólinn Grænuvellir verði leiðandi skóli á landsvísu í innleiðingu STE(A)M.

Hefst 2025: Samstarfsverkefni STEM Húsavík, Draumaleikhússins og Castor Media. Framtíðarfundir fyrir ungt fólk er verkefni sem býður upp á samtal og valdeflingu ungs fólks á starfssvæði STEM Húsavík um framtíðarstörf og möguleika ungs fólks á að skapa sína eigin framtíð í heimahögum. Í heimi hraðra tæknibreytinga, gervigreindar og þéttbýlisvæðingar er mikilvægt að varpa ljósi á framtíð ungs fólks í dreifbýlum svæðum landsins. STEM Húsavík, fyrsta samfélagsmiðaða STEM námsvistkerfið á Íslandi, býður upp á samtal við ungt fólk um framtíð starfa.