27.–30. júlí 2026
Fyrir börn fædd 2014, 2015 og 2016
Bækistöð í Kaldbaksskógi

Á sumarnámskeiði STEM Húsavík í ár ætlum við að skoða fuglalífið í kringum okkur með augum ungra náttúruvísindakrakka.

Við verðum með bækistöð í Kaldbaksskógi og notum dagana til að fylgjast með fuglum, hlusta eftir hljóðum í skóginum, teikna, skrá og velta fyrir okkur hvað fuglarnir eru að gera og hvernig þeir lifa.

Á námskeiðinu skoðum við náttúruna í kringum okkur á lifandi og skapandi hátt.
Börnin fá tækifæri til að:

  • fylgjast með fuglum og ummerkjum eftir þá
  • hlusta eftir fuglasöng og hljóðum í náttúrunni
  • teikna og skrá í eigin Náttúrudagbók
  • spyrja spurninga og gera einfaldar athuganir
  • læra að lesa betur í náttúruna í kringum sig
  • njóta þess að vera úti, kanna, skapa og uppgötva

Markmiðið er að efla forvitni, athygli, sköpun og tengsl barna við náttúruna

Allir þátttakendur útbúa sína eigin Náttúrudagbók sem þau nota á námskeiðinu til að skrifa, teikna og skrá það sem þau sjá og uppgötva.
Dagbókina taka þau svo með sér heim að námskeiði loknu.

Námskeiðið er fyrir börn fædd 2014, 2015 og 2016
Pláss eru takmörkuð og því er mikilvægt að skráning sé eins bindandi og mögulegt er.

Dagsetningar: 27.–30. júlí 2026
Tími: kl. 10:00–13:00
Dagar: mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur
Staður: Kaldbaksskógur / Húsavík

Nánari upplýsingar um mætingarstað verða sendar í tölvupósti til skráðra þátttakenda.

Þátttökugjald er 8.500 kr.
Hægt er að greiða með millifærslu eða fá sendan reikning í tölvupósti.

Kennitala: 570123-1300
Reikningur: 0567-26-5701

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru:
Huld Hafliðadóttir
stofnandi og forstöðukona STEM Húsavík
Elena Martinez
Montessori kennari

Skráning fer fram með því að fylla út skráningarform
Athugið að pláss eru takmörkuð.

SKRÁ BARN Á NÁMSKEIÐIÐ