Fyrsti vinnufundur Erasmus+ verkefnisins ViSOE var nýlega haldinn í Stavanger í Noregi með góðum árangri. ViSOE stendur fyrir Visual Storytelling for Ocean Education og er samstarfsverkefni Háskóla Íslands (Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík), Háskólans í Stavanger, Háskólans í Árósum og STEM Íslands og stendur yfir í þrjú ár.

ViSOE miðar að því að þróa nýskapandi, stafrænt námsefni um hafið fyrir kennara, m.a. byggt á nýlegri siglingu leiðangursskipsins Barba um norðurslóðir. Markmiðið með námsefninu er að auka þekkingu og vitund um hafið og lífríki þess, auk þess að stuðla að lifandi, skemmtilegu og fjölbreyttu námsefni. Efnið byggir á fjölbreyttum, persónulegum og myndrænum sögum úr leiðangri á norðurslóðum og verður aðgengilegt á netinu, bæði sem námsefni í kennaranámi og sem styttri námskeið fyrir starfandi kennara.






Verkefnið nýtir sér að auki efni frá fyrri hvalaskoðunar- og rannsóknarverkefnum, þar á meðal hljóðupptökur af hvölum sem notaðar verða í námsefninu. STEM Húsavík og STEM Ísland taka þátt í verkefninu m.a. með því að miðla því til kennara á Íslandi og leggja til tæknilega og vísindalega þekkingu. Verkefnið eykur þannig aðgengi að kennsluefni sem tengist náttúru Íslands. Markmiðið er að útfæra efnið á íslensku, dönsku og norsku.
