Ársfundur ICEBERG í Nantes

STEM Húsavík átti fulltrúa á ársfundi ICEBERG verkefnisins sem haldinn var dagana 4.–6. febrúar 2025 í Nantes í Frakklandi. Huld, sem situr í ráðgefandi stjórn verkefnisins, tók þátt í fundinum sem ráðgjafi og tengiliður við samfélag feltrannsókna. Það er Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem tekur þátt í verkefninu fyrir hönd Íslands.

Fundurinn markaði eitt ár frá upphafi ICEBERG verkefnisins og var dýrmætur vettvangur til að yfirfara helstu árangur, fá endurgjöf frá Evrópusambandinu, miðla upplýsingum og skipuleggja næstu skref verkefnisins.

Auk Huldar í ráðgefandi stjórn verkefnisins situr Erik Kielsen frá Grænlandi, en hann sér um aðstoð og tengingar við samfélagið á Grænlandi. 

Von er á rannsóknarfólki ICEBERG verkefnisins til Húsavíkur í byrjun sumars.

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading