Um liðna helgi fór fram hin árlega tækni- og forritunarkeppni FIRST LEGO League í Háskólabíói, en keppnin hefur verið haldin af Háskóla Íslands frá árinu 2005, sem hluti af stærri alþjóðlegri keppni. Líkt og í fyrra var Forritunarklúbbur STEM Húsavík í samstarfi við FabLab Húsavík með lið í keppninni, að þessu sinni hið glæsilega lið Team Starfish, en þema ársins í keppninni var e. Submerged – eða neðansjávar.



Tilgangur First Lego League (FLL) er að bjóða ungu fólki að taka þátt í spennandi verkefnum sem:
- skapa færni í vísindum og tækni
- örva nýsköpun
- byggja upp lífsleiknihæfileika eins og sjálfstraust, samvinnu- og samskiptahæfni
Liðið samanstóð af 7 flottum nemendum úr Borgarhólsskóla, en 5 af þeim tókum þátt í keppninni sjálfri. Vegna veðurs komst liðið ekki suður og tók því þátt rafrænt og voru vélmennakapphlaup þeirra tekin upp á föstudeginum og keppnin sjálf var svo á laugadegi.
Team Starfish mætti í tvö viðtöl við dómara, rafrænt á laugardeginum, auk þess að fylgjast með beinu streymi frá keppninni ásamt fjölskyldu og vinum á Stéttinni.
Þá hlaut Team Starfish þriðju verðlaun í flokknum Besta liðsheildin. Við óskum Team Starfish til hamingju með frábæran árangur og flott lið og hlökkum til að sjá þau spreyta sig í tækni og nýsköpun í framtíðinni.
