Þrívíddargleraugu til að læra um hvali og plastmengun

Verkefni sem miðar að því að efla umhverfisvitund nemenda og hvetja til umhverfisverndar á viðkvæmum norðurslóðum, auk þess að sýna fram á möguleika sýndarveruleika til menntunar með svokölluðum sýndarhreyfanleika.

©Kristinn Ingvarsson

Arctic Sense er fjögurra mánaða vísinda- og samskiptaleiðangur um Atlantshafið (einkum Svalbarða) sem hófst í júní 2021. 
Það voru Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík undir stjórn Dr. Marianne H. Rasmussen og leiðangurs-seglskipið Barba AS sem leiddu verkefnið. Markmiðið var að rannsaka hvalastofna og kortleggja plastmengun í gegnum ferðina, auk þess að kanna vistkerfi Atlantshafsins, meta núverandi heilsufar þess og spá fyrir um áhrif þróunar norðurslóða.
Tilgangur Arctic Sense var einnig að fræða yngri kynslóðina um hafið, mikilvægi þess og viðkvæmni í tilefni af áratug Sameinuðu þjóðanna um hafvísindi fyrir sjálfbæra þróun (2021-2030).
Að leiðangri loknum voru sjónrænar og vísindalegar afurðir hans notaðar til að setja saman yfirgripsmikinn fræðslupakka fyrir skóla og söfn í Noregi, Danmörku og Íslandi. 

Sýndarveruleiki, með færanlegum höfuðbúnaði, vekur leiðangurinn og uppgötvanir hans til lífsins aftur og aftur. Þannig munu fjölbreytt verkefni byggð á skólanámskrám í náttúrufræði, stærðfræði og sjálfbærni bjóða upp á raunhæfa og hagnýta reynslu tenga lausnamiðun, vettvangsvinnu og gagnagreiningu. Með verkefninu vonast rannsakendur til að bjóða upp á sýndarhreyfanleika í menntun og ávinning af ferðalögum án þess að þurfa að ferðast.
Samstarf skóla og safna í Noregi, Danmörku og Íslandi var grundvöllur verkefnisins en samstarfsaðilanir leiðbeindu við að hanna námsefni, prófa það og veita endurgjöf. 

Afraksturinn var pakki sem ferðaðist til skóla og safna í þessum þremur löndum á verkefnistímabilinu. Nú er verkefninu lokið og gleraugun og námsefnið verður til útláns fyrir menntunaraðila í tækjasafni STEM Húsavík

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading