Í síðustu viku heimsótti Háskólalestin Borgarhólsskóla á Húsavík. Að þessu sinni voru fjórir staðbundnir aðilar þátttakendur í lestinni og buðu upp á vinnustofur fyrir nemendur 7. – 10. bekkjar Borgarhólsskóla, auk þess að bjóða upp á opið hús fyrir gesti og gangandi síðar um daginn. Það skemmtilega er að allir fjórir aðilarnir eru hluti af STEM Húsavík námsvistkerfinu.


Huld bauð upp á STEM smiðju þar sem nemendur kynntust tækni sem notuð er til að umbreyta rafleiðni plantna í tónlist, nemendur fengu að spreyta sig í teymisvinnu við verkfræðihugsun og stærðfræðiþrautum. Hreint út sagt frábær dagur með hressum krökkum!