Upphafsfundur ST(R)E(A)M IT

STEM Ísland tekur þátt í Horizon Evrópuverkefninu ST(R)E(A)M ITStreaming girls and women into STEM education, research and innovation. 

Upphafsfundur verkefnisins var haldinn í Búdapest í lok febrúar sl. en það er rannsóknastofnunin Hetfá í Ungverjalandi sem leiðir verkefnið. 19 stofnanir í 17 Evrópulöndum sem taka þátt í verkefninu.

Meginmarkmið verkefnisins er að koma af stað breytingum á viðvarandi kynjamisrétti í STEM menntun, rannsóknum og nýsköpun til að stuðla að innleiðingu stefnu Evrópusambandsins um jafnrétti kynja innan STE(A)M greina (námi og starfi) eða „The European Manifesto for Gender-Inclusive STE(A)M education and careers”.

Unnið verður að því að ná markmiðinu með því að 1) styrkja hópa sem eru í minnihluta í STEM, 2) prófa og hlúa að samþættingu STEAM nálgana (A stendur fyrir listir/skapandi greinar) í STEM menntun með því að sameina fyrri þekkingu og tengslanet, 3) stuðla að jafnrétti kynja innan starfsferla, hlúa að námsbrautum sem styrkja hæfileika á sviðum STEM, ásamt því að gera STEM starfsferla aðlaðandi, 4) styðja STEM menntaveitendur með þekkingarmiðlun og getuuppbyggingu með það fyrir augum að ryðja úr vegi kynbundnum hindrunum, þar með talið kynbundnum staðalímyndum í STEM menntun. 

Með því að hvetja til sjálfbærrar samvinnu STEM-miðaðra fyrirtækja, framhalds- og háskólastofnana, rannsóknarstofnana, svo og óformlegra menntastofnana eins og safna, vísindasetra, frjálsra félagasamtaka og annarra, mun ST(R)E(A)M IT bjóða upp á nokkur úrræði til að loka núverandi kynjabili í STEM menntun og starfsferli.

Hlutverk STEM Íslands í verkefninu er að setja á fót innlendar miðstöðvar á netinu til innblásturs (Inspiration Hubs) fyrir kennara og samfélög til að byggja upp getu í STEM: til að deila og skiptast á reynslu, sérfræðiþekkingu, lærdómi og greina yfirfæranlegar bestu starfsvenjur og stuðla að því að niðurstöður verkefna og viðburða lifi umfram einstök verkefni.

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading