Viðurkenning úr Íslenskusjóði

STEM Húsavík og Móðurmál á Norðurland hlutu í maí styrk og viðurkenningu frá Íslenskusjóði Háskóla Íslands fyrir verkefnið „Að nota STEM til að styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna á Norðurlandi“.

Markmið verkefnisins er að styðja við íslenskukunnáttu fjöltyngdra barna og foreldra þeirra með skapandi og fræðandi STEM fjölskylduviðburðum þar sem áhersla er lögð á virkni, þátttöku og tengsl við nærsamfélagið.

Verkefnið byggir á rannsóknum um mikilvægi virkrar móðurmálsnotkunar og samþættingar í menntun fjöltyngdra barna. Með því að tengja saman móðurmál, íslensku, STEM-hugtök og verkleg verkefni skapast vettvangur þar sem börn og fjölskyldur geta lært saman í gegnum reynslu, samtal og virkni.

Á sama tíma jafnar verkefnið aðgengi barna og fjölskyldna að STEM menntun og styður við þátttöku þeirra í samfélaginu.

Verkefnið hefst í september 2025 og í kjölfarið verður unnið að mánaðarlegum viðburðum þar sem börn og foreldrar vinna saman að fjölbreyttum og hagnýtum STEM verkefnum sem styðja við málþroska, hugtakaskilning og sjálfstraust í íslensku.

Við hlökkum mikið til að hefja verkefnið og þökkum Íslenskusjóði kærlega fyrir stuðninginn og traustið.

Leave a Reply