STEM Húsavík tók í júní þátt í fyrstu ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna GELYDA, sem haldin var á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Ráðstefnan fjallaði um menntun, æskulýðsstarf og farsæld barna og ungmenna í víðum skilningi.

Á ráðstefnunni var Huld með erindi á málstofunni Vellíðan og tengsl í menntun. Erindið fjallaði um samfélagsdrifna nýsköpun í menntun og sagði frá uppbyggingu STEM Húsavík námsvistkerfisins.
Í erindinu var fjallað um hvernig skólar, fjölskyldur, menningarstofnanir, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki og aðrir aðilar í nærsamfélaginu geta unnið saman að því að skapa fjölbreytt tækifæri til náms. Slík nálgun styður við staðbundna STEM menntun, eflir framtíðarfærni barna og ungmenna og byggir á þátttöku, sköpun og tengslum.
Ráðstefnan var heildræn í nálgun sinni og fjallaði meðal annars um farsæld, vellíðan, nám í víðu samhengi og mikilvægi tengsla og vináttu í lífi barna og ungmenna.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Andreas Schleicher, sem er þekktur fyrir störf sín á sviði menntamála og alþjóðlegra menntarannsókna. Í erindi sínu minnti hann meðal annars á að akademísk frammistaða er ekki það eina sem skiptir máli. Menntun þurfi að þróast frá því að leggja megináherslu á utanbókarlærdóm yfir í að efla forvitni, samkennd, hugrekki og hæfni barna til að rata um flókinn og síbreytilegan heim.
Þátttaka STEM Húsavíkur á ráðstefnunni var dýrmætt tækifæri til að miðla reynslu úr starfinu á Húsavík, tengja hana við alþjóðlega umræðu um menntun og styrkja tengsl við fræðasamfélag og fagfólk sem vinnur að farsæld barna og ungmenna.