Vel heppnað sumarnámskeið þriðja árið í röð

Í júlí fór fram sumarnámskeið STEM Húsavík, Náttúruvísindakrakkar, þriðja árið í röð. Þema námskeiðsins í ár var Hringrás og var sjónum beint að hringrásum í náttúru, samfélagi og hlutunum í kringum okkur.

Yfir vikuna fengu þátttakendur að rannsaka, skapa og skoða nærumhverfið með „vísindagleraugum“. Þau unnu meðal annars með endurnýtingu, bjuggu til náttúrudagbækur úr endurnýttum efnivið, fóru í vettvangsathuganir og veltu fyrir sér hvernig hlutir geta fengið nýtt líf.

Námskeiðið nýtti, líkt og áður, styrkleika STEM námsvistkerfisins á Húsavík. Börnin fengu innsýn í ólík verkefni og staði í samfélaginu, meðal annars í gegnum heimsóknir og samtöl sem tengdust sjálfbærni, hafinu, sköpun og endurnýtingu.

Að þessu sinni tóku eingöngu stelpur þátt í námskeiðinu og var vikan einstaklega vel heppnuð, með mikilli virkni, forvitni og sköpunargleði.

Við þökkum þátttakendum, foreldrum og öllum þeim sem tóku á móti okkur og lögðu sitt af mörkum. Samstarf samfélagsins er lykillinn að því að gera STEM nám lifandi, staðbundið og merkingarbært fyrir börn og ungmenni.

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading