Framtíðin er okkar: Bæjarstæði barnanna

Dagana 13. og 14. september síðastliðinn fór fram barnamenningarhátíðin Framtíðin er okkar: Bæjarstæði barnanna á Húsavík. Hátíðin er hluti af stærra regnhlífarverkefni STEM Húsavíkur sem nefnist Framtíðin er okkar. Hluti hátíðarinnar, bæjarstæði barnanna, var haldið af Hagsmunasamtökum barna í samstarfi við STEM Húsavík og fjölda einstaklinga, stofnana og aðila í nærsamfélaginu.

Yfirskrift verkefnisins var einföld en stór:

Hvernig verður Húsavík í framtíðinni?
Hvaða breytingar viljum við sjá?
Hvað viljum við vernda?
Og hvað gerir gott samfélag?

Með þessum spurningum var framtíðarbæjarbúum Húsavíkur, börnunum sjálfum, boðið að taka þátt í samtali um samfélagið sitt. Í fjölbreyttum smiðjum vítt og breitt um bæinn fengu börn tækifæri til að skoða, skapa, spyrja og ímynda sér framtíð Húsavíkur út frá eigin reynslu og hugmyndum.

Verkefnið gekk vonum framar og sýndi hversu mikilvægt það er að börn fái raunverulegan vettvang til að tjá sig um eigið samfélag. Börn sjá oft hluti sem fullorðnir hætta að taka eftir og hugmyndir þeirra geta orðið mikilvægur hluti af samtali um framtíð, byggðaþróun og lífsgæði.

Fyrir STEM Húsavík er verkefnið hluti af stærri sýn: að tengja menntun, sköpun, samfélag og framtíðarfærni og sýna að börn og ungmenni eru ekki aðeins þátttakendur í framtíðinni, heldur virkir mótendur hennar.

Leave a Reply