Framtíðin er okkar: Framtíðarfundir fyrir ungt fólk

Á dögunum fóru fram Framtíðarfundir fyrir ungt fólk á starfssvæði STEM Húsavík. Verkefnið er hluti af Framtíðin er okkar og mikilvægur liður í stærra átaki STEM Húsavíkur til að efla færni, þátttöku og framtíðarsýn ungs fólks á tímum örra samfélags- og tæknibreytinga.

Markmið fundanna var að skapa vettvang fyrir samtal og valdeflingu ungs fólks um framtíðarstörf, færni og möguleika þeirra til að skapa eigin framtíð í heimahögum. Í heimi þar sem gervigreind, tæknibreytingar og þéttbýlisvæðing hafa áhrif á nám, störf og byggðaþróun er mikilvægt að varpa ljósi á framtíð ungs fólks á dreifbýlum svæðum og hlusta á þeirra eigin sýn.

Á fyrri degi fundanna kortlögðu þátttakendur störf, þjónustu og starfsemi á Húsavík. Unnið var með kort af bænum og skoðað hvaða störf eru til staðar í ólíkum hlutum samfélagsins. Í framhaldinu ræddu þátttakendur hvaða færni þarf til að sinna ólíkum störfum og hvernig þau tengjast mismunandi geirum samfélagsins.

Seinni dagurinn snerist um framtíðina. Þá fengu þátttakendur að vinna með eigin hugmyndir, ímynda sér nýja möguleika og velta fyrir sér hvernig þau sjálf gætu átt þátt í að móta framtíðina á Húsavík.

Verkefnið var unnið í samstarfi við Draumaleikhúsið og Castor Media. Framtíðarfundirnir sýndu vel hversu mikilvægt er að ungt fólk sé ekki aðeins umræðuefni í samtali um framtíð byggðanna, heldur virkir þátttakendur í því samtali.

Sem fyrsta samfélagsmiðaða STEM námsvistkerfið á Íslandi leggur STEM Húsavík áherslu á að tengja menntun, samfélag og atvinnulíf með markvissum hætti. Framtíðarfundirnir eru hluti af þeirri vinnu: að efla framtíðarfærni, þátttöku og trú ungs fólks á eigin möguleika í heimabyggð.

Hér fyrir neðan má horfa á tvö innlegg um verkefnið:

Ungt fólk og gervigreind:

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading