Fjöltyngt STEM-orðasafn í vinnslu

STEM Húsavík og Móðurmál á Norðurlandi vinna nú að fjöltyngdu STEM-orðasafni sem hluta af samstarfsverkefninu From Words to Wonder / Frá orðum til undrunar.

Markmiðið er að safna saman hugtökum sem tengjast vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði á ólíkum tungumálum og gefa út fjöltyngda STEM-orðabók í vor.

Orðasafnið er unnið í opnu samstarfi og við hvetjum fjölskyldur, kennara og aðra áhugasama til að taka þátt með því að bæta við orðum á sínu tungumáli. Þannig verður orðabókin til í sameiningu, með framlagi frá fólki með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Verkefnið styður við íslenskunám fjöltyngdra barna og fjölskyldna þeirra, en um leið viðurkennir það mikilvægi móðurmálsins og fjölbreyttra tungumála í námi. Með því að tengja STEM-hugtök við ólík tungumál skapast tækifæri til samtals, skilnings og þátttöku í gegnum vísindi, sköpun og sameiginlega þekkingarleit.

Fjöltyngda STEM-orðasafnið er hluti af verkefni STEM Húsavík og Móðurmáls Norðurlands sem nýtir STEM til að efla íslenskukunnáttu fjöltyngdra barna og fjölskyldna þeirra.

Viltu taka þátt?
Kíktu á orðasafnið og bættu við orðum á þínu tungumáli sem tengjast STEM — vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði.

Leave a Reply