Ársfundur Arctic-ICEBERG verkefnisins

Dagana 20.–22. janúar fór fram ársfundur evrópska rannsóknarverkefnisins ICEBERG í Bologna á Ítalíu. Fundurinn var haldinn af samstarfsaðila verkefnisins, Instituto di Scienze Polari / Consiglio Nazionale delle Ricerche, og markaði upphaf þriðja starfsárs verkefnisins.

ICEBERG-verkefnið er þverfaglegt verkefni sem leiðir saman rannsakendur, samstarfsaðila og staðbundna aðila frá ólíkum löndum með það að markmiði að efla þekkingu, miðla niðurstöðum og styrkja tengsl vísinda, stefnumótunar og samfélags í tengslum við mengun á Norðurlslóðum.

Húsavík og nágrenni eru einn af rannsóknarvettvöngum verkefnisins og gegnir STEM Húsavík hlutverki staðbundins samhæfingaraðila. Huld Hafliðadóttir, forstöðukona STEM Húsavíkur, situr jafnframt í ráðgefandi stjórn verkefnisins.

Á fundinum var farið yfir framgang verkefnisins, helstu niðurstöður og næstu skref á lokaspretti þess. Þátttaka STEM Húsavíkur í ICEBERG undirstrikar mikilvægi þess að tengja alþjóðlegt rannsóknarstarf við nærsamfélög og skapa tækifæri til miðlunar, samtals og þátttöku á staðnum.

Leave a Reply