Endurmenntunarferð til Bodø styrkir STEM námsvistkerfið á Húsavík

Í lok apríl fór hópur kennara úr STEM Húsavík námsvistkerfinu í lærdómsríka endurmenntunarferð til Bodø í Noregi. Ferðin var hluti af Erasmus+ verkefni og hafði það að markmiði að efla faglega þekkingu, sækja innblástur og styrkja tengsl innan STEM námsvistkerfisins. Um var að ræða kennara frá Leikskólanum Grænuvöllum, Borgarhólsskóla auk stjórnenda í Frístund.

Slíkar ferðir gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu lifandi námsvistkerfis. Þær skapa tækifæri fyrir kennara og samstarfsaðila til að kynnast nýjum aðferðum, sjá ólíkar útfærslur á STEM-menntun í verki og velta fyrir sér hvernig hægt er að aðlaga hugmyndir að eigin skóla- og nærsamfélagi.

Ferðin hófst hjá FIRST Scandinavia, þar sem hópurinn fékk innsýn í hugmyndafræði Newton Room og FIRST LEGO League. Í Newton-rýminu fengu þátttakendur sjálfir að takast á við verkefni tengd orku og mælingum, þar sem áhersla var lögð á hagnýtt, lifandi og rannsakandi nám. Þá prófaði hópurinn einnig að byggja og forrita LEGO-þjarka, þar sem nýir þættir, svo sem gervigreind, eru orðnir hluti af námsumhverfinu.

Hópurinn heimsótti einnig Aspåsen Skole, grunnskóla með um 300 nemendur. Þar fékk hópurinn kynningu á skólastarfinu, þar sem mikil áhersla er lögð á tengslamyndun, útivist og vellíðan nemenda. Sérstaka athygli vakti að fyrstu vikur skólaársins eru nýttar markvisst til að byggja upp traust, jákvæð tengsl og gott námsumhverfi, meðal annars með útiveru og sameiginlegum verkefnum. Þá eru frímínútur lengri en víða tíðkast og útinám er mikilvægur hluti af daglegu skólastarfi.

Hluti hópsins heimsótti jafnframt leikskólann Læringsverkstedet Notveien Naturbarnehage, þar sem áhersla er lögð á útikennslu, skynjun og tengingu barna við náttúruna. Þar rækta börnin meðal annars eigið grænmeti, læra um ferli náttúrunnar og nýta hráefni úr nærumhverfinu, svo sem þang úr fjörunni, sem áburð. Heimsóknin gaf góða innsýn í hvernig náttúran getur orðið virkur hluti af námi, þroska og skynjun barna.

Ferðinni lauk með heimsókn í Norsk Luftfartsmuseum, norska flugsafnið í Bodø. Þar hitti hópurinn safnkennara sem kynnti fjölbreytt fræðsluprógrömm safnsins og hvernig þau byggja á virkri þátttöku nemenda. Í safninu er nám sett í samhengi við raunveruleikann með skapandi kennsluaðferðum, hlutverkaleikjum og lifandi frásögnum. Slík söfn gegna mikilvægu hlutverki í STEM námsvistkerfum, þar sem þau tengja námsefni við raunverulegt líf, tækni, sögu og samfélag.

Endurmenntunarferðin til Bodø var bæði hvetjandi og gagnleg og mun nýtast áfram í þróun STEM starfs á Húsavík. Hún styrkti tengsl milli þátttakenda, gaf nýjar hugmyndir að kennslu og undirstrikaði mikilvægi þess að byggja upp nám í samstarfi skóla, stofnana, safna, fyrirtækja og samfélagsins alls.

STEM Húsavík þakkar kennurum frá Leikskólanum Grænuvöllum og Borgarhólsskóla Húsavík kærlega fyrir þátttökuna. Saman höldum við áfram að þróa lifandi STEM námsvistkerfi á Húsavík.

Leave a Reply

Discover more from STEM Húsavík

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading