Reynsla STEM Húsavíkur kynnt á alþjóðlegri menntaráðstefnu

STEM Húsavík tók í júní þátt í fyrstu ráðstefnu alþjóðlegu samtakanna GELYDA, sem haldin var á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Ráðstefnan fjallaði um menntun, æskulýðsstarf og farsæld barna og ungmenna í víðum skilningi. Á ráðstefnunni var Huld með erindi á málstofunni Vellíðan og tengsl í menntun. Erindið fjallaði um samfélagsdrifna nýsköpun í menntun og sagði frá uppbyggingu STEM Húsavík námsvistkerfisins. Í erindinu var fjallað um hvernig skólar, fjölskyldur, menningarstofnanir, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki og aðrir aðilar í nærsamfélaginu geta unniðContinue reading “Reynsla STEM Húsavíkur kynnt á alþjóðlegri menntaráðstefnu”

Viðurkenning úr Íslenskusjóði

STEM Húsavík og Móðurmál á Norðurland hlutu í maí styrk og viðurkenningu frá Íslenskusjóði Háskóla Íslands fyrir verkefnið „Að nota STEM til að styðja við íslenskunám fjöltyngdra barna á Norðurlandi“. Markmið verkefnisins er að styðja við íslenskukunnáttu fjöltyngdra barna og foreldra þeirra með skapandi og fræðandi STEM fjölskylduviðburðum þar sem áhersla er lögð á virkni, þátttöku og tengsl við nærsamfélagið. Verkefnið byggir á rannsóknum um mikilvægi virkrar móðurmálsnotkunar og samþættingar í menntun fjöltyngdra barna. Með því að tengjaContinue reading “Viðurkenning úr Íslenskusjóði”

STEM og Nýsköpun í skólastarfi

Starfsemi STEM Húsavík og STEM Íslands var kynnt á fræðslufundi á vegum Alheims, vísindaseturs nú í mars, en þar var Huld með erindi um mikilvægi samfélagslegrar þáttöku í menntun. Auk Huldar, sem kynnti STEM Húsavík og STEM Ísland, kynnti Eyjólfur Brynjar Eyjólfsson starfsemi Nýmenntar á Menntavísindasviði og Per-Arild Konradsen stofnandi forstjóri FIRST Scandinavia kynnti the Newton concept, sem er hugmyndafræði sem byggir á verklegum og verkefnamiðuðum námsstöðvum (Newton Rooms) þar sem nemendur fá að vinna að raunhæfumContinue reading “STEM og Nýsköpun í skólastarfi”

Ársfundur ICEBERG í Nantes

STEM Húsavík átti fulltrúa á ársfundi ICEBERG verkefnisins sem haldinn var dagana 4.–6. febrúar 2025 í Nantes í Frakklandi. Huld, sem situr í ráðgefandi stjórn verkefnisins, tók þátt í fundinum sem ráðgjafi og tengiliður við samfélag feltrannsókna. Það er Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem tekur þátt í verkefninu fyrir hönd Íslands. Fundurinn markaði eitt ár frá upphafi ICEBERG verkefnisins og var dýrmætur vettvangur til að yfirfara helstu árangur, fá endurgjöf frá Evrópusambandinu, miðla upplýsingum og skipuleggjaContinue reading “Ársfundur ICEBERG í Nantes”

Vel heppnaður fyrsti vinnufundur ViSOE verkefnisins í Stavanger

Fyrsti vinnufundur Erasmus+ verkefnisins ViSOE var nýlega haldinn í Stavanger í Noregi með góðum árangri. ViSOE stendur fyrir Visual Storytelling for Ocean Education og er samstarfsverkefni Háskóla Íslands (Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík), Háskólans í Stavanger, Háskólans í Árósum og STEM Íslands og stendur yfir í þrjú ár. ViSOE miðar að því að þróa nýskapandi, stafrænt námsefni um hafið fyrir kennara, m.a. byggt á nýlegri siglingu leiðangursskipsins Barba um norðurslóðir. Markmiðið með námsefninu er aðContinue reading “Vel heppnaður fyrsti vinnufundur ViSOE verkefnisins í Stavanger”