Fjöltyngt STEM-orðasafn í vinnslu

STEM Húsavík og Móðurmál á Norðurlandi vinna nú að fjöltyngdu STEM-orðasafni sem hluta af samstarfsverkefninu From Words to Wonder / Frá orðum til undrunar. Markmiðið er að safna saman hugtökum sem tengjast vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði á ólíkum tungumálum og gefa út fjöltyngda STEM-orðabók í vor. Orðasafnið er unnið í opnu samstarfi og við hvetjum fjölskyldur, kennara og aðra áhugasama til að taka þátt með því að bæta við orðum á sínu tungumáli. Þannig verðurContinue reading “Fjöltyngt STEM-orðasafn í vinnslu”

Viðburðarríkur dagur hjá STEM Húsavík

Það var viðburðarríkur dagur hjá STEM Húsavík í dag þar sem áhersla var lögð á fræðslu, samstarf og ný tækifæri fyrir börn, kennara og fjölskyldur. Dagurinn hófst á starfsdegi með kennurum Borgarhólsskóla og starfsfólki Frístundar, þar sem kynnt var nýtt námsefni sem hægt er að nýta með Tækjasafni STEM Húsavík. Einnig var farið yfir annan stuðning sem stendur kennurum til boða við að efla skapandi og verklegt STEM nám í skólastarfi. Síðar um daginn fór framContinue reading “Viðburðarríkur dagur hjá STEM Húsavík”

Framtíðin er okkar: Framtíðarfundir fyrir ungt fólk

Á dögunum fóru fram Framtíðarfundir fyrir ungt fólk á starfssvæði STEM Húsavík. Verkefnið er hluti af Framtíðin er okkar og mikilvægur liður í stærra átaki STEM Húsavíkur til að efla færni, þátttöku og framtíðarsýn ungs fólks á tímum örra samfélags- og tæknibreytinga. Markmið fundanna var að skapa vettvang fyrir samtal og valdeflingu ungs fólks um framtíðarstörf, færni og möguleika þeirra til að skapa eigin framtíð í heimahögum. Í heimi þar sem gervigreind, tæknibreytingar og þéttbýlisvæðing hafa áhrif á nám,Continue reading “Framtíðin er okkar: Framtíðarfundir fyrir ungt fólk”

Framtíðin er okkar: Bæjarstæði barnanna

Dagana 13. og 14. september síðastliðinn fór fram barnamenningarhátíðin Framtíðin er okkar: Bæjarstæði barnanna á Húsavík. Hátíðin er hluti af stærra regnhlífarverkefni STEM Húsavíkur sem nefnist Framtíðin er okkar. Hluti hátíðarinnar, bæjarstæði barnanna, var haldið af Hagsmunasamtökum barna í samstarfi við STEM Húsavík og fjölda einstaklinga, stofnana og aðila í nærsamfélaginu. Yfirskrift verkefnisins var einföld en stór: Hvernig verður Húsavík í framtíðinni?Hvaða breytingar viljum við sjá?Hvað viljum við vernda?Og hvað gerir gott samfélag? Með þessum spurningum varContinue reading “Framtíðin er okkar: Bæjarstæði barnanna”

Vel heppnað sumarnámskeið þriðja árið í röð

Í júlí fór fram sumarnámskeið STEM Húsavík, Náttúruvísindakrakkar, þriðja árið í röð. Þema námskeiðsins í ár var Hringrás og var sjónum beint að hringrásum í náttúru, samfélagi og hlutunum í kringum okkur. Yfir vikuna fengu þátttakendur að rannsaka, skapa og skoða nærumhverfið með „vísindagleraugum“. Þau unnu meðal annars með endurnýtingu, bjuggu til náttúrudagbækur úr endurnýttum efnivið, fóru í vettvangsathuganir og veltu fyrir sér hvernig hlutir geta fengið nýtt líf. Námskeiðið nýtti, líkt og áður, styrkleika STEM námsvistkerfisins áContinue reading “Vel heppnað sumarnámskeið þriðja árið í röð”